Konungsflugan
Öngull: Daiichi #2052, stærð 3, gylltur, einkrækja. Þetta er uppskrift Engilberts Jensen, skráð eftir honum sjálfum, yfirlesið og samþykkt. Sagan á bak við fluguna er sú að Carl Gustaf XVI Svíakonungur varð sextugur hinn 30. apríl 2006. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, færði honum gjafir til fluguveiði af þessu tilefni. Gjöfin samanstóð af Wish fluguhjólinu, sem Steingrímur Einarsson á Ísafirði, hefur hannað. Á hjólið var sett GPX lína frá ÁRVÍK en flugustöngin var E2 stöngin frá Scott, 9,5 fet fyrir línu átta. E2 stöngin er smíðuð eftir hugmyndum Engilberts Jensen. Það var þess vegna vel við hæfi að Engilbert hannaði og hnýtti sérstaka flugu af þessu tilefni. Fylgdi hún gjöf forsetans til Svíakonungs. ÁRVÍK © 2010 |