Stofnun:
Guðmundur Árnason og sonur hans Árni Árnason stofnuðu sameignarfélagið ÁRVÍK sf. hinn 7. nóvember 1983. Sameignarfélaginu var breytt í hlutafélag þann 8. desember 1990. Skráð hlutafé er krónur 11.000.000. Eignarhald fyrirtækisins er nú í höndum Árna Árnasonar og fjölskyldu hans.
Fyrirrennari ÁRVÍKUR hf. var inn- og útflutningsfyrirtækið G. Þorsteinsson & Johnson hf. sem var stofnað árið 1941. Guðmundur Árnason var framkvæmdastjóri þess fyrirtækis þar til árið 1983 þegar hann og Garðar Þorsteinsson áváðu að slíta samstarfi sínu. Garðar Þorsteinsson stofnaði nýtt fyrirtæki með sama nafni sem hann seldi síðar. Guðmundur Árnason stofnaði hins vegar ÁRVÍK sf. ásamt Árna syni sínum. ÁRVÍK hélt helmingi þeirra viðskiptasambanda sem áður heyrðu undir G. Þorsteinsson og Johnson hf.
Framkvæmdastjóri::
Árni Árnason tók við framkvæmdastjórastöðu hjá ÁRVÍK hf. hinn 1. ágúst 1991, þegar faðir hans lét af störfum vegna aldurs og seldi hlut sinn í fyrirtækinu.
Árni Árnason útskrifaðist með MBA gráðu frá háskólanum í Minnesota árið 1974. Hann var hagfræðingur Verzlunarráðs Íslands frá árinu 1974 og síðar framkvæmdastjóri þess árið 1979 til ársins 1986, þegar hann hóf störf sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá BYKO hf. Árni kom til starfa hjá ÁRVÍK í maí 1991.
Stjórn:
Jóhanna Gunnlaugsdóttir er formaður stjórnar ÁRVÍKUR. Jóhanna lauk BA-prófi í bókasafns- og upplýsingafræði og sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1985 og MSc(Econ) prófi frá háskólanum í Wales, í stjórnun og rekstri fyrirtækja, með áherslu á upplýsingastofnanir og upplýsingakerfi innan fyrirtækja. Frá árinu 1986 hefur hún starfað sem ráðgjafi hjá Gangskör sf., ráðgjafafyrirtæki á sviði upplýsingamála, þar sem hún er einn eigenda. Hún lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Tampere í nóvember 2006. Ritgerð hennar fjallar um innleiðingu og notkun rafrænna skjalastjórnunarkerfa. Jóhanna er prófessor í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Halla Árnadóttir er meðstjórnandi. Halla lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1997 og útskrifaðist frá Ferðaskóla Flugleiða vorið 1998. Hún lauk námi í viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík með BS gráðu í viðskiptafræði vorið 2001. Hún hóf þá störf sem aðstoðarmaður starfsmannastjóra hjá Skeljungi hf. en starfar nú sem SAP ráðgjafi hjá AppliCon á Íslandi.
Árni Árnason framkvæmdastjóri ÁRVÍKUR á einnig sæti í stjórninni, en hana skipa alls 3 stjórnarmenn.
© ÁRVÍK hf. 2009