Allar vörur vikunnar
SILUNGAPOKI STÓR Í BELTI

Stór silungapoki sem festa má í belti. Er einnig með rennilás og höldum. Á pokanum er snúra til þess að festa pokann t.d. við stein. Þannig má láta silungsaflann liggja í vatni í pokanum uns veiði lýkur.

Vörunúmer LE2925.

HÁFUR HNÚTALAUS M/SEGLI - SCOOP NET

Silungaháfur með hnútalausu neti og segli. Stærð 30 sm x 40 sm og dýpt 30 sm. Í miðju háfsins er þéttofið net til þess að veiða flugur af yfirborði vatnsins. Sterkur segull er í enda handfangsins þannig að auðvelt er að losa háfinn og festa hann á sig aftur. Vörunúmer LE1028.

LÍNUHREINSISETT - FAST CAST LINE CLEANING SYSTEM

Vörunúmer LOF0430

Hreinsi- og smurefnissett frá Loon fyrir flugulínur. Í settinu er Line Speed smur- og hreinsiefnið (LOF0115) og Stream LIne snögghreinsi- og sleipiefnið (LOF0401) ásamt stangarfestingu. Þessi efni má einnig kaupa sérstaklega. Þá er til sérstakt hreinsiefni fyrir sökklínur, Sink Fast (LOF0411).

Fréttir
26.04.12
Það eru hreinar línur....
Það eru hreinar...

..... að hreinar línur renna betur. Það myndast oftar en ekki óhreinindi á flugulínum veiðimanna og því er ekki seinna vænna að þrífa línurnar. Silungsveiðin er hafin og það styttist í laxveiðina. Þegar línurnar verða skítugar fara þær að renna illa í lykkjum stanga okkar og skila ekki þeim köstum sem þær annars myndu gera. Það er ekki flókið verk að þrífa línurnar en það á það til að gleymast hjá okkur öllum.

Við hjá Árvík bjóðum hreinsi- og smurefnissett fyrir flugulínur. Í settinu er Line Speed smur- og hreinsiefnið (LOF0115) og Stream Line snögghreinsi- og sleipiefnið (LOF0401) ásamt stangarfestingu. Þessi efni má einnig kaupa sérstaklega. Þá er til sérstakt hreinsiefni fyrir sökklínur, Sink Fast (LOF0411). Þessi gerð breytir ekki sökkeiginleikum.

Við hjá Árvík óskum veiðimönnum gleðilegs sumar.

Deila fréttDeila frétt

Karfan mín

Karfan er tóm
Hjálp
Nýjustu fréttir
10.05.13
Vötnin vakna...
Í helgargöngu umhverfis Vífilsstaðavatn laugardaginn 4. maí síðastliðinn sá ég tvo...
Jólagjafir handa...
Til þess að auðvelda val á jólagjöfum til stang- veiðimanna höfum við uppfært...
Útsalan heldur áfram...
Enn er til allgott úrval af Scientific Anglers fluguhjólum og spólum. Útsölunni verður þess vegna...
Útsala á Scientific...
Árvík á enn til breitt úrval af fluguhjólum frá Scientific Anglers. Þessi hjól verða...
Það eru hreinar...
..... að hreinar línur renna betur. Það myndast oftar en ekki óhreinindi á flugulínum veiðimanna og...