Allar vörur vikunnar
AQUANOVA WIND TAPER - FLOTLÍNA.

  • Er framþung lína .
  • Hún er hönnuð fyrir köst móti vindi.
  • Mjög góð lína fyrir löng köst.
  • Teflon® er blandað í kápuna til þess að gera hana sleipari og til þess að hrinda frá óhreinindum
  • Ekkert minni, hringast ekki í köldu vatni
  • Línan er 32 metra löng
  • hún er fáanleg í sex línuþyngdum, frá fjögur til níu.

    Vörunúmer: NS00014, NS00015, NS00016, NS00017, NS00018 og NS00019.

  • WYCHWOOD DISTANCE FLOTLÍNA.

    Áttu í vandræðum með að kasta nógu lagt ?

    Þá er Wychwood Distance flotlínan klárlega línan fyrir þig. Hún er hönnuð sérstaklega fyrir  löng köst. Til í línuþyngdum 5 til 8.

    Vörunúmer. LE2308, LE2315, LE2322, LE2339. 

    LÍNUHREINSISETT - FAST CAST LINE CLEANING SYSTEM

    Vörunúmer LOF0430

    Hreinsi- og smurefnissett frá Loon fyrir flugulínur. Í settinu er Line Speed smur- og hreinsiefnið (LOF0115) og Stream LIne snögghreinsi- og sleipiefnið (LOF0401) ásamt stangarfestingu. Þessi efni má einnig kaupa sérstaklega. Þá er til sérstakt hreinsiefni fyrir sökklínur, Sink Fast (LOF0411).

    Fréttir
    28.02.12
    Vörukynning - Happdrætti
    Vörukynning -...

    Miðvikudaginn 29. febrúar 2012 verður ÁRVÍK hf. með kynningu á ýmsum vörum til fluguveiði í Árósum, húsakynnum Ármanna í Dugguvogi 13. Kynntar verða ýmsar nýjungar sem verða fáanlegar í verslunum nú í sumar. Húsið opnar kl. 20:00. Við komuna fá gestir aðgöngumiða, án endurgjalds, og er hann jafnframt happdrættismiði. Verður dregið í happdrættinu í lok kynningar.

    Á kynningunni verða sýndar Aquaz-vöðlur frá Aqua Sport í Kóreu sem koma í sölu í vor. Nýjungar í þeim vöruflokki eru vöðlur sem er til hálfs neoprene og úr öndunarefni, mittisvöðlur og neoprene-vöðlur fyrir skó en slíkar vöðlur hafa ekki verið fáanlegar lengi. Einnig verða sýndar nokkrar gerðir af öndunarvöðlum.

    ÁRVÍK hefur hafið sölu á flugulínum frá Northern Sport í Kanada. Þessar línur hafa verið reyndar við íslenskar aðstæður með góðum árangri. Línurnar eru á mjög hagstæðu verði miðað við flugulínur og einkum þegar litið er til gæða. Þær henta sérstaklega vel til veiða á norðurslóðum þar sem vatns- og lofthiti er stundum í lægri kantinum eins og er hér á landi.

    Þá verða kynntar flugustangir frá Scott og Wychwood, og töskur frá Wychwood og Fishpond auk nokkurra annarra vara.

    Í lok kynningarinnar fer happdrættið fram undir styrkri stjórn eina mannsins sem hefur full réttindi til þess að stýra happdrætti á vegum Ármanna. Fyrstu verðlaun verða Aquaz-vöðlur að eigin vali. Önnur verðlaun eru Truefly-fluguhjól í gjafaöskju með tveimur aukaspólum. Þriðju verðlaun eru Catch-veiðigleraugu með þremur skiptanlegum linsum. Fjórðu verðlaun eru silungaháfur frá Leeda og silungapoki og loks eru það fimmtu verðlaunin en þau eru flugulína frá Northern Sport að eigin vali. Hlaupársdagur kemur ekki nema á fjögurra ára fresti en hann gæti orðið sumum félögum Ármanna happafengur í ár.

    Deila fréttDeila frétt

    Karfan mín

    Karfan er tóm
    Hjálp
    Nýjustu fréttir
    10.05.13
    Vötnin vakna...
    Í helgargöngu umhverfis Vífilsstaðavatn laugardaginn 4. maí síðastliðinn sá ég tvo...
    Jólagjafir handa...
    Til þess að auðvelda val á jólagjöfum til stang- veiðimanna höfum við uppfært...
    Útsalan heldur áfram...
    Enn er til allgott úrval af Scientific Anglers fluguhjólum og spólum. Útsölunni verður þess vegna...
    Útsala á Scientific...
    Árvík á enn til breitt úrval af fluguhjólum frá Scientific Anglers. Þessi hjól verða...
    Það eru hreinar...
    ..... að hreinar línur renna betur. Það myndast oftar en ekki óhreinindi á flugulínum veiðimanna og...