TRUEFLY SLA - FLUGUVEIÐIHJÓL

Vörunúmer LE5820 og LE9990

Stór fluguveiðihjól frá Wychwood. Hjólin voru valin bestu nýju fluguveiðihjólin á veiðivörusýningunni EFTTEX 2009. Sérlega létt og góð stór hjól. Koma í fallegri harðri tösku með tveimur aukaspólum.

  • Gerð fyrir línu 7/8
  • Heilsteypt úr áli
  • Spólurnar eru úr Polycarbon
  • Tekur 100m af baklínu með línu nr. 7
  • Rulon diskahemill
  • Hjólin eru fáanleg bæði svört og grá
Fréttir
10.12.09
Hagstætt verð
Hagstætt verð...

Er verðið á heimasíðunni ykkar rétt? Þetta er spurning sem við heyrum oft. Oftast er verið að spyrja út í verð á línum og öðrum vörum frá Scientific Anglers og spurt er í undrun hvort verðið sé virkilega svona lágt? Og svarið er: Já, verð á heimasíðunni er svona hagstætt. Verð á heimasíðunni er leiðbeinandi smásöluverð þeirra vara sem við dreifum í heildsölu. Vörur frá Scientific Anglers eru undantekning. Árvík er ekki lengur með heildsöludreifingu á þeim vörum. Verðið er engu að síður leiðbeinandi heildsöluverð en frá því fyrir hrun. Verðið er þess vegna afar hagstætt og lítil þörf á raðgreiðslum til kaupa á þeim vörum.

Síðunni er samviskusamlega við haldið. Ef verð breytist er það leiðrétt á heimasíðunni. Nýtt efni er við og við að bætast á síðuna undir Fróðleikur - veiði, Flugur – uppskriftir og Veiðistaðalýsingar. Þá eru nýjar vörur einnig að bætast við í vörulistann. Má þar nefna hnýtingaþvingur og fleira frá Griffin, nýjar vörur frá Fishpond og Zap-límin frá Dave og Emily Whitlock. Hægt er að leita í vörulistanum með því að slá inn heiti vöru eða vörunúmer í leitargluggann efst til hægri.  Ef vörunúmerið GR0722 er t.d. slegið inn í gluggann kemur Odyssey Spider-hnýtingaþvingan í leitirnar. Gæta þarf þess að rita vörunúmerið í samfellu. Eyða í númeri er nægilegt frávik til þess að rugla leitarvélina.

Karfan mín

Karfan er tóm
Hjálp
Nýjustu fréttir
10.12.09
Hagstætt verð...
Er verðið á heimasíðunni ykkar rétt? Þetta er spurning sem við heyrum oft. Oftast er verið að...
Kamasan - 100 öngla...
Þeir sem hnýta mikið eiga þess nú kost að kaupa þrjár gerðir Kamasan öngla í 100...
Kort af...
Hinn 19. október síðastliðinn birtist hér á vefnum grein um veiði í Þingvallavatni eftir...